“Við erum öll tengd saman og enginn er við stjórnvölinn.” Það segir Thomas Friedman í morgun í kjallaragrein um Ísland í New York Times. Greinin lýsir sigri og hruni frjálshyggju hjá íslenzkum bönkum. Hefur raunar lengi verið helzta grúppía frjálshyggjunnar. Telur þó nú, að einhver þurfi að vera við stjórnvölinn. Sósíalismi hefur því læðst inn um bakdyrnar hjá Friedman. Er enn þeirrar skoðunar, að hnattvæðingin haldi áfram, en vill nú fjölþjóðlega stjórn á henni. Í framhjáhlaupi grínast hann að Landsbankanum. Sem notaði á heimasíðunni orðið “óþægindi” um glatað fé á sparireikningum.