Hver treystir forsætis og keisara, sem segja Glitni eiga góða framtíð með góð eignasöfn? Bankarnir eiga ekki góð eignasöfn, bara ímyndaðar eignir. Bókfærðar milljarðatölur, sem ekki er hægt að koma í verð. Sumt af þessu hefur orðið til á þann hátt, að sami aðili hefur selt sjálfum sér ímyndaða eign í tvo-þrjá hringi og hækkað verðið í hvert skipti. Eignir eru bunkar af svona rusli, sem enginn getur nýtt sér, hvað þá étið. Þessar ímynduðu eignir eru veð fyrir jöklabréfum, sem falla á þriggja mánaða fresti. Engin fjármálastofnun á raunverulega fyrir skuldum sínum. Eru allar gjaldþrota.