Með blaðri nær Landsbankinn ekki að fegra sig í augum þjóðarinnar. Getur haldið fundi víða um land til að básúna velvild sína. Verkin tala samt í Landsbankanum eins og annars staðar. Steinþór Pálsson getur sparað sér dýra auglýsingaherferð. Enginn tekur mark á henni. Verkin segja mér, að bankinn sé enn rekinn með hugarfari ársins 2007. Til dæmis lætur hann þjóðina borga ævintýralegan taprekstur Davíðs á Mogganum og eignarhald Jóns Ásgeirs á 365-fjölmiðlum. Bankinn hossar útrásar- og kvótabófum, afskrifar þá og afhendir þeim sukkið að nýju. Alveg er eftir að hreinsa óþverrann úr Landsbankanum.