Morgunblöð, sem nærri eingöngu eru seld í áskriftarformi, hafa jafna sölu alla daga vikunnar. Síðdegisblöð, sem seld eru jöfnum höndum í áskrift og stökum eintökum, hafa misjafna sölu og mesta á mánudögum.
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Hagvangs hefur Dagblaðið stungið litlu blöðin af í sölu og lestri án þess að ná Morgunblaðinu. Dagblaðið situr í öðru sæti, mitt á milli Morgunblaðsins og Vísis, og hefur smeygt sér rétt fram úr sjónvarpinu.
Dagblaðið hefur að jafnaði 82% af útbreiðslu Morgunblaðsins miðað við lestur. Þetta bil mjókkar hins vegar verulega, ef bezta sölublað Dagblaðsins er miðað við Morgunblaðið. Mánudagsblað Dagblaðsins selst nefnilega allt að því eins vel og Morgunblaðið.
Í skýrslu Hagvangs eru því miður ekki upplýsingar um lestur mánudagsblaða, aðeins um sölu þeirra. Samkvæmt þeim kemst Morgunblaðið til 70% þjóðarinnar og Dagblaðið á mánudögum til 63% þjóðarinnar. Þann dag hefur Dagblaðið 90% af venjulegrí sölu Morgunblaðsins.
Í öðrum töflum skýrslunnar kemur í ljós, að Morgunblaðið hefur lægri lestrartölur en sölutölur, meðan Dagblaðið hefur hærri lestrartölur. Munurinn á Morgunblaðinu og Dagblaðinu minnkar yfirleitt um fimm prósentustig, ef borinn er saman lestur í stað sölu.
Full ástæða er til að ætla, að þetta gildi jafnt um mánudaga og aðra daga, þótt slíkt verði ekki endanlega sannað fyrr en í næstu könnun. Ef þetta er rétt, hefur Dagblaðið á mánudögum 95% af venjulegum lestri Morgunblaðsins.
Fróðlegt væri að geta borið saman lestur Morgunblaðsins og mánudagsblaðs Dagblaðsins. Þar sem þess er ekki kostur, verðum við að sætta okkur við að bera saman söluna, þótt hún sé hvorki eins hagstæö Dagblaðinu né eins góður mælikvarði á mikilvægi fjölmiðla og lesturinn er.
Aldursflokkurinn 20-29 ára hefur þá sérstöðu að kaupa mikið af tízkuvörum og vera að stofna heimili, með öllum þeim innkaupum, sem því fylgja. Af þessum aldursflokki kaupa 73% Dagblaðið á mánudögum, en aðeins 59% aldursflokksins kaupa Morgunblaðið.
Samkvæmt töflum Hagvangs kaupa 10% aldursflokksins Morgunblaðið í lausasölu, 49% í áskrift eða samtals 59%. Samkvæmt töflunum kaupa 35% aldursflokksins Dagblaðið í lausasölu á mánudögum, 38% í áskrift eða samtalS 73%.
Þetta eru áreiðanlega fróðlegar upplýsingar fyrir marga auglýsendur og margar auglýsingastofur, sem ekki höfðu áttað sig á þessu áður. Það er líka athyglisvert að 62% húsmæðra kaupa Morgunblaðið, en á mánudögum kaupa 65% húsmæðra Dagblaðið.
Áfram má tína tölur úr töflum Hagvangs um hina miklu mánudagssölu Dagblaðsins. 61% sjávarútvegsfólks kaupir Morgunblaðið, en á mánudögum kaupa 80% sjávarútvegsfólks Dagblaðið.
Ef allir kaupstaðir landsins eru teknir saman, hefur Dagblaðið yfirburði vegna mánudagsins. Í kaupstöðun um kaupa 54% manna MOrgunblaðið, en 65% kaupa Dagblaðið á mánudögum.
Á mánudögum er Dagblaðið yfir venjulegri Morgunblaðssölu í Reykjaneskjördæmi, Suðurlandi, Austurlandi, Norðurlandi eystra og vestra, svo og Vesturlandi. Aðeins í Reykjavík og á Vestfjörðum hefur Morgunblaðið enn yfirhöndina.
Jónas Kristjánsson
Dagblaðið