Engin dæmi eru um, að forvirkar rannsóknir lögreglu fari ekki út fyrir mörk. Ekki þarf að fara lengra en til Bretlands til að sjá langa röð af ólöglegum rannsóknum af þessu tagi. Hugmyndin er seld út á eftirlit með dópsölum, en snýst fljótt gegn andófi og andstöðu við ríkjandi sjónarmið. Umhverfissinnar þykja hvarvetna mjög grunsamlegir. Jafnvel Nató frændi reyndi að skipuleggja hér á landi æfingar á árásum á umhverfissinna. Aldrei má í lög leiða neinar heimildir til forvirkra aðgerða af neinu tagi. Löggan er í eðli sínu óhæf um að gera nokkurn greinarmun á bófum og hvers konar pólitískum aðgerðasinnum.