Með dómi sínum gegn stjórnlagaþingi tekst Hæstarétti að tefja endurheimt þjóðarinnar á stolnum auðlindum hafsins. Eina leiðin til að hrinda bandalagi kvótagreifa og Hæstaréttar er að taka tillit til athugasemda réttarins. Kjósa að nýju sem allra fyrst. Þannig getur stjórnlagaþingið hafizt í apríl í stað þess að hefjast í febrúar. Tveggja mánaða seinkun er þolanleg miðað við ógöngurnar, sem málið hefur ratað í. Við getum rifizt um, hvernig eigi að bregðast við dómi Hæstaréttar. En við verðum að standa saman um málið sjálft: Að koma fram nýju orðalagi í stjórnarskrá, sem endurheimtir þýfið.