Þjóðverjinn Horst Müller hefur árum saman notað þýzkar stúlkur sem þræla á Café Margrét á Breiðdalsvík. Hefur nánast ekki borgað þeim neitt og hvorki greitt af þeim opinber gjöld né lífeyri. Samt hefur Vinnumálastofnun árum saman látið þetta viðgangast. Það er risavaxin stofnun undir sofandi stjórn Gissurar Péturssonar, þekkts framsóknar-kvígildis. Inger Linda Jónsdóttir sýslumaður hefur ekki heldur nennt að gera neitt í málinu. Stéttarfélagið á svæðinu hefur reynt að malda í móinn. En fínir embættismenn hlusta nú ekki á svoleiðis pakk. Ekki fyrr en Müller rústaði skrifstofu stéttarfélagsins.
