Ekki bara hitamælir

Punktar

Krónan er ekki bara hitamælir. Oftast lofsyngja menn notkun hennar vegna sveiflujöfnunar. Hún rústar lífskjörum þjóðarinnar í einu vetfangi, til dæmis eftir hrunið 2008. Kemur í stað eðlilegrar hagstjórnar. Þannig er krónan eins konar ígildi hagstjórnartækis. Í ríkjum með gjaldgenga mynt er ekki hægt að steypa vandamálum á herðar almennings. Þannig gátu hagstjórar Írlands ekki leyst vandann á einfaldan hátt. Þar er evra, en hér er króna. Hér var öllu skellt á almenning. Er menn fagna aðild krónunnar að íslenzku lausninni á vanda hrunsins, skella þeir skollaeyrum við vandræðum fólks.