Ekkert íslenzkt rifrildi

Punktar

Aldrei hefur merkari eða lærdómsríkari fundur verið haldinn hér á landi. Í Hörpu í gær var smásjánni beint að fjármálum og hagmálum Íslands. Þar var misjöfn sýn á flest mál, en ekkert rifizt að íslenzkum hætti. Tveir gallar voru á vali framsögumanna. Í fyrsta lagi eru þeir flestir engilsaxar. Því skorti hina heilbrigðu meginlandssýn, sem hefði komið með þýzkum og frönskum fræðingum. Í öðru lagi eru þeir áhugamenn um stofnanir, ekki um fólk. Þess vegna voru margir þeirra hrifnir af hagstjórn, sem felst í að skera í einu vetfangi niður lífskjör fólks. Töldu gengislækkun gjaldmiðils vera lausn.