Ekkert bankaáhlaup í dag

Punktar

Í morgun bárust engar fréttir af áhlaupi sparifjáreigenda á íslenzka banka í Bretlandi. Hins vegar höfðu menn lent þar í vandræðum með að taka út fé úr netbönkum þeirra. Það var sagt vera tæknileg villa í tölvukerfinu. Menn taka það gott og gilt. Í heildina verður því ekki annað hægt að segja, en að Kaupþing og Landsbankinn standi enn í báða fætur erlendis. Alls ekki varð vart við neitt af því hruni, sem sumir bjuggust við. Það eru góðar fréttir í súpu vondu fréttanna. Brezku sunnudagsblöðin voru full af vondum fréttum af íslenzkum bönkum. Það hefur ekki haft sjáanleg áhrif í dag.