Eitraðir í kuldanum

Punktar

Vinstri græn hafa leyst Sjálfstæðis af sem meint kjölfesta stjórnmálanna. Eftir kosningarnar verða allir, sem vilja, búnir að sjá, að Sjálfstæðis er eitraður. Allir flokkar, sem fara í samstarf við hann, fölna og deyja, að þessu sinni Björt framtíð og að hálfu leyti Viðreisn. Við höfum séð þetta áður. Sjálfstæðis er baneitraður bófaflokkur fyrir siðblindingja. Vinstri græn eru annars háttar flokkur, samt flókinn. Þar hafa femínistar tekið mest völd og Steingrímur Joð kominn á hliðarspor með sínar fabrikkur og kvótagreifa. Píratar og Samfylkingin eru kjörnir samstarfsaðilar, einnig Flokkur fólksins með gamlingja og fátæka.