Einnig Bretar eru fífl

Punktar

Fátt bendir til, að Gordon Brown sé verri pólitíkus eða forsætis en slíkir eru að meðaltali. Samt hefur hann rústað brezka Verkamannaflokknum á aðeins tæpu ári. Sem pólitíkus er Brown samt hrein himnasending í samanburði við fyrirrennarann, Tony Blair. Sá var mesti lygalaupur samtímans, sagði aldrei satt orð ótilneyddur. Hann fór illa með Bretland, en vann þó allar kosningar með glæsilegum yfirburðum. Sigurganga Blair og ósigur Brown eru skýrt dæmi um, að fólk er fífl. Kjósendur eru fífl í Bretlandi eins og þeir eru á Íslandi og í öðrum lýðræðisríkjum. Heimskunni eru engin takmörk sett.