Einn þingmaður á lífi

Punktar

Húrra fyrir Álfheiði Ingadóttir. Vinstri græn eru ekki alveg dauð úr öllum æðum. Hún krefst siðvæðingar bankanna. Heimtar, að auglýstar verði stöður bankastjóra og annarra lykilstarfsmanna bankanna. Mótuð verði eigendastefna ríkisins, svo að bankarnir keyri ekki lengur á sjálfstýringu. Hún er andvíg sérstökum eignaumsýslufélögum bankanna, sem eru án gegnsæis og starfa í skjóli bankaleyndar. Það er eins og ríkisstjórnin hafi engin tök á bönkum sínum, sé máttlaus gegn inngróinni spillingu. Svartasta dæmið um bankaruglið er ráðning Steinþórs Baldurssonar IceSave-greifa til Landsbankans.