Einföld lausn vandans

Punktar

Ekki er flókið að bjarga þjóðinni frá gjaldþroti. Neita að greiða neitt til Bretlands. Hafna láni frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Prenta nóg af seðlum til að halda uppi viðskiptum innanlands. Þjóðnýta gjaldeyristekjur, þannig að öll utanríkisviðskipti séu á einum stað. Nota aldrei meiri gjaldeyri en fæst í hverjum mánuði. Tryggja olíuflutninga til landsins. Kenna fólki að nota fisk til matar í stað innfluttrar pakkafæðu. Láta hagkerfi mannúðar leysa hagkerfi gróðans af hólmi. Láta engan þurfa að svelta. Tryggja, að allir hafi húsaskjól, hita og rafmagn. Meira þarf nú ekki til björgunar.