Einar tekur mál alvarlega

Punktar

Einar Guðfinnsson sjávarútvegs sendi mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna afar íslenzkt bréf. Hann hafnar auðvitað kröfu nefndarinnar um að greiða sjómönnum bætur vegna kvótakerfisins. Ísland er þó aðili að nefndinni og hefur skuldbundið sig til að hlíta úrskurðum hennar. Í stað þess sendi Einar lögfræðilega útúrsnúninga, sem hann segir stjórnarflokkana hafa samþykkt. Lögfræðilegu útúrsnúningarnir séu “til marks um hve alvarlega íslenzk stjórnvöld hafi tekið málið”. Hins vegar lofar Einar að líta betur á málið síðar á kjörtímabilinu. Útúrsnúningar laga eru íslenzk sérgrein.