Flest bendir til, að núverandi stjórnarskrá lögverndi stórþjófnað með því að gera nánast ókeift að endurheimta þýfi. Friðhelgi eignaréttar er svo sterk, að hún nær yfir verndun þýfis. Þar vantar ákvæði um eignaupptöku hjá þeim, sem sakaðir eru um þjófnað. Ríkið heldur þá eignunum meðan málið er í ferli, en verður að skila þeim, ef þær reynast ekki hafa verið þýfi. Augljóslega er siðferðilega rangt, að bankabófar og útrásarbófar vaði í peningum, sem þeir hafa stolið. Sú er raunin hér á landi og gerir þjóðinni ókleift að sætta sig við fjárhagslegar hrakfarir sínar. Stjórnlagaráð þarf að taka á þýfisrétti.