Ég segi já – flestir segja nei

Punktar

Í þjóðaratkvæðinu mun ég segja já við IceSave lögunum. Viðurkenni jafnframt, að niðurstaða heildarinnar verður nei. Viðurkenni líka, að sú leið hefur kosti, þótt gallarnir verði þungbærir. Neyðumst til harðrar skömmtunar á gjaldeyri til að lifa af án erlendra lána. Frestum öllum stórvirkjum. Reynum að halda uppi atvinnu með efldri ferðaþjónustu. Hún veitir flest störf með minnstum kostnaði. Við lendum í miklum hremmingum í samskiptum við útlönd, en við skuldum minna en ella. Mikilvægast verður að hleypa ekki hrunverjum að valdastólunum. Þeir mundu spilla nauðsynlegu uppgjöri við fortíðina.