Eftirsjá að Steve Jobs

Punktar

Mér hefur alltaf verið illa við Microsoft með tölvuvírusa þess og sífelldar viðgerðir. Þurft að nota klunnaleg forrit, sem minna á Trabant í samanburði við Ferrari forritin á makkanum. Hef stundum þurft að þola PC í vinnu, en ævinlega notað makka heima. Eftirsjá er að Steve Jobs, hugmyndafræðingi notendavænnar stefnu Apple. Sá galli er þó við makkann, að hann er lokaður eins og Microsoft. Væri ég að byrja að nota tölvu nú, mundi ég veðja á opin og ókeypis Linux forrit. Íslenzkir skólar færast smám saman yfir í Linux. En ég er orðinn svo gamall, að ég mun halda trúnaði við makka út á leiðarenda.