Yfirbankabófi Landsbankans ver glæpi bankans með því, að “eftirlitsnefnd Alþingis” hafi samþykkt þá verstu. Líklega lýgur hann, það er helzta iðja bankabófa. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd Alþingis krefjast þess, að eftirlitsnefnd bankaráðuneytis svari fyrir gerðir sínar. Sjálfsögð krafa. Á endanum kemur þá í ljós, hvort pólitískar eða embættis-pöddur séu samsekar bankabófunum. Markmið þeirra er að láta eins og ekkert hafi gerzt. Og að endurreisa megi gamla ógeðið á nýjan leik. Ef Steinþór Pálsson laug þessu upp á ófundna nefnd, er rétt, að honum verði vikið strax úr starfi.