Stofnun, sem týnir skjölum, getur varla sinnt eftirliti með fjármálum. Slíkt er þó ástandið hjá Fjármálaeftirlitinu. Gögn þessi fjölluðu um laun nokkurra starfsmanna eftirlitsins. Þegar gögnin fundust, tregðaðist stofnunin við að svara spurningum. Eftir sjö mánaða þóf sendi hún svar til Úrskurðarnefndar um upplýsingalög. Svarið segir málið vera leyndó. Samkvæmt upplýsingalögum eiga svona mál að hafa forgang í kerfinu og þetta er forgangurinn í reynd. Málið tafðist síðan enn hjá Úrskurðarnefnd, sem jafnan tekur sér lengri tíma til svara en lög heimila. Þetta er stjórnkerfi Íslands enn þann dag í dag.