Eftirlætisiðja bankastjóranna

Punktar

Kennitöluflakk er enn þann dag í dag eftirlætisiðja allra bankastjóra. Ef þú ert góðvinur bankans, færðu aðstoð hans við að skipta um kennitölur, koma skuldum þínum fyrir á einni kennitölu og eignunum á annarri. Fyrirgreiðslur og stéttaskipting eru enn í fullu gildi í bönkunum. Ef þú ert almúgi, þýðir ekkert fyrir þig að biðja um kennitöluflakk í bankanum. Þér er bara sparkað út. En ef þú ert meðal mestu glæpamanna heimsins, færðu vildarþjónustu. Bankinn þinn hjálpar þér við kennitöluflakk og krefst þess jafnanframt, að þú fáir áfram að stjórna fyrirtækinu, sem þú keyrðir lóðbeint á hausinn.