Efasemdir um Ara fróða

Punktar

Fornleifarannsóknir sýna byggð á Íslandi fyrir landnámið, sem Íslendingabók Ara fróða lýsir. Hundrað eða jafnvel tvöhundruð árum fyrir landnám höfðu menn sumarsetu hér á landi vegna hlunninda. Þeir ræktuðu ekki tún til að heyja vetrarforða handa húsdýrum. Sést af frjókornagreiningum. Tún koma til sögunnar við landnám, en búseta er eldri. Í góðum árum, sem þá voru mörg, var hægt að hafa búfé á vetrarbeit. Við vitum ekki, hvaðan fólkið kom, en líta má til eyjanna norðan Skotlands. Líklega er hér byggðin, sem Írar kölluðu Thule. Ari fróði hefur laskazt sem sagnfræðingur. Var hann fyrsti leigupenninn?