Dýrkeypt hatur á vottun

Punktar

Danskir fiskimenn hafa ákveðið að danskar fiskveiðar verði umhverfisvottaðar af Marine Stewardship Council. Allar danskar fiskveiðar. MSC er meginstofa vottunar um vistvænar veiðar í Evrópu. Einmitt stofan, sem fer sérstaklega í taugar Fiskistofu og samtaka útvegsmanna á íslandi. Hún gerir kröfur, sem íslenzk útgerð vill ekki uppfylla. Vill heldur ráða sjálf, hvernig hún er vottuð, rétt eins og íslenzkur landbúnaður. En það er orðið dálítið seint að búa til prívat vottun fyrir Ísland, þegar allir aðrir eru farnir aðra leið. Þrjózka okkar endar með, að íslenzkar fiskafurðir verða bannaðar í Evrópu.