Dýrkeypt gjafmildi bankanna

Punktar

Sá, sem keypti íbúð í fyrra á 25 milljónir króna, verður í lok þessa árs búinn að tapa fimm milljónum. Íbúðaverðið verður þá komin niður í tuttugu milljónir. Það svipað og það hefði verið, ef bankarnir hefðu ekki keyrt upp eftirspurnina. Þessar fimm milljónir voru yfirverð á íbúðum, sem nú er að ganga til baka. Hagstæðari lán auðvelduðu fólki ekki að ráða við íbúðakaup, því að íbúðir hækkuðu í verði sem svaraði hærri lánum. Til viðbótar munu svo vextir af þessum íbúðum hækka um leið og bankarnir fá tækifæri. Þegar upp er staðið, verður gjafmildi bankanna orðin dýr kaupaglöðum almenningi.