Dylgjumaskína Sjálfstæðisflokksins hefur nokkra daga linnulaust borið út dylgjur um, að Ólafur F. Magnússon sé á galeiðunni á kvöldin. Engin dæmi eru rakin um, að slíkt leiði til vandræða. Ef Ólafur lítur inn á kaffihús, er það hið bezta mál. Verðandi borgarstjóri, Hanna Birna Kristjánsdóttir, gaf dylgjunum vængi. Lýsti meira að segja áhyggjum sínum í Kastljósi, ekki að vísu af Ólafi, heldur af fréttum um hann. Það nægði til að grafa undan Ólafi og til þess voru refirnir skornir. Kastljósmenn þurfa að gæta sín betur á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og dylgjumaskínu Sjálfstæðisflokksins.
