Duglegur Heimdellingur Stefán

Punktar

Stefán Einar Stefánsson hefur reynslu af kosningabaráttu. Kom við sögu á frægu þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna í hittifyrra. Þá var flogið einkaflug með áhugafólk vestur á kostnað ónefnds velgerðarmanns. Flugið réði úrslitum um atkvæði til stjórnarsetu. Nú er Stefán aftur kominn í baráttu af þessu tagi. Vill verða verkalýðsrekandi hjá VR. Ég túlka það svo, að öfl í Sjálfstæðisflokknum muni leggja fé til að ná félaginu í sínar hendur. Stefán er líka frægur fyrir að fá Biskupsstofu til að slíta tölvuþjónustu frá EJS til að flæma Teit Atlason úr starfi. Óvenju duglegur Heimdellingur Stefán.