Þjóðminjasafnið er flott. Fór þangað með tvo afastráka. Þeim fannst bezt að fara í kompu, þar sem hægt er að setja upp hjálm, sveifla sverði og skildi. Mér fannst bezt að skoða gömul reiðtygi. Enga skeifu sá ég, enda munu þær vera fágætar á söfnum. Hljóta þær þó að hafa dottið af úti um hvippinn og hvappinn. Kannski voru skeifur lítið notaðar á miðöldum á Íslandi. Kannski var gróðurinn svo mjúkur, að skeifur þurfti bara í langferðum. Dularfullt kort sýndi litla útbreiðslu birkiskóga. Drógu menn þá birkið upp á Kjöl til kolagerðar? Espresso á Kaffitárs-barnum var ódrekkandi, líklega mjög fornt.
