Á fésbók var í dag rætt um misjöfn orð yfir leiðtoga, höfuðpaur, forkólf, forsprakka. Sýnist mönnum hvert orð henta sérstöku tilviki. Fróðleg umræða. Við þurfum aðra slíka um orðaval um ófriðlegt andlát; drepa, myrða, fella, útrýma, deyða. Hefðbundið er, að morð segi, að reynt sé að leyna drápinu. Þess vegna var Osama ekki myrtur. Að deyða felur í sér líkn, svo ekki voru þeir að deyða Osama. Að útrýma felur í sér að losna við plágu og margir þá drepnir í senn, ekki bara Osama. Að drepa felur í sér athæfi utan stríðs. Ef Obama var drepinn í stríði, þá var hann felldur. En er terrorismi stríð?