Aðild að Evrópusambandinu er stóri draumurinn. Þá verðum við komin með lága vexti, traustan gjaldmiðil og nánast enga verðbólgu. Bara vaxtalækkun ein verður meira happ fyrir samfélagið en aðrar aðgerðir samanlagðar. Raunar verður ekki hægt að lifa eðlilegu lífi hér fyrr en með aðildinni. Samtök atvinnulífsins skilja, að viðskiptalíf verður þá fyrst sómasamlegt. Og íbúðakaupendur munu fyrr en síðar skilja það. Við höfum að vísu 80% af því regluverki sambandsins, sem Svíar hafa. En við höfum ekki það, sem mestu máli skiptir, rétta vexti, rétta verðbólgu, rétt gengi. Fæst í Bruxelles.
