Draumaland varð martraðarland

Punktar

Draumalandið var til skamms tíma Kalifornía. Þar rann fé stríðum straumum. Þar fæddust nýjar stefnur í lífsstíl. Þar voru haldnir ekki bara AA-fundir um áfengisvanda, heldur hliðstæðir fundir um yfir hundrað önnur vandamál. Þar var bandaríski draumurinn framleiddur í kvikmyndaverum. Þar blómstruðu blómabörn og þar var The Terminator gerður að ríkisstjóra. Í efnahag var ríkið sjöunda stærsta ríki heims. Nú er Kaliforníu-draumurinn að breytast í Kaliforníu-martröðina. Ríkið rambar á barmi gjaldþrots í dauðagildru laga, sem takmarka skatta á ríku fólki. Lífsstílnum hentaði ekki að borga skatta.