Ég kemst ekki yfir, að flokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafi 18% fylgi þjóðarinnar. Formaðurinn laug til um menntun sína, einkum um próf. Ég hef ekkert út á að setja, að menn forðist próf. Hriflu-Jónas tók ekki próf. En hann laug engu um það. Sem er málið. Langt er liðið síðan, formaður er núna sjónhverfingamaður að hætti hrunverja. Keypti formennsku í Framsókn með illa fengnu fé úr Kögun á erfiðum tíma í ævi flokksins. Hjá forstjóra Kögunar fékk Sigmundur Davíð menntun sína í siðferði. Óviðurkvæmilegt er, að með sjónhverfingum takist dr. Sigmundi Kögunarsyni að efla fylgi flokksins.