Dorrit Moussaieff segir sannleikann í viðskiptatímaritinu Conde Nast Portfolio. Hvað eftir annað reynir Ólafur Ragnar Grímsson að þagga niður í henni, en tekst ekki. Dorrit er sjálfstæður einstaklingur, hefur skynsamlega sýn og segir það, sem hún sér. Forsetinn er hins vegar flæktur í neti þess, sem má og ekki má. Dorrit segir sig hafa langað til að taka þátt í mótmælum við alþingishúsið, en Ólafur hafi bannað það. Við lestur viðtalsins við þau hjón dettur mér helzt í hug, að Dorrit sé ekki vel gift. Getum við ekki fengið hana fyrir forseta?