Njála er döpur bók um durga, sem rífast og grýtast og þjarkast linnulaust fyrir dómstólum. Helztu söguhetjur eru lagatæknar, sem spilla réttlæti með lagakrókum. Njáll og Mörður hafa afleit áhrif á Íslendinga nútímans. Höfundurinn kemst helzt í stuð, þegar hann lýsir fjálglega lýriti og annarri lagatækni. Eina skemmtilega persónan er Skarphéðinn. Tilsvör hans bjarga því, sem bjargað verður, einkum liðsbón hans á Alþingi. Margir elska þessa bók, enda vilja þeir engin mál leysa með samkomulagi. Sannfærðir um að vinna sigur í hvers kyns dómsmálaþjarki. Of margir Íslendingar eru frumstæðir.