Disaster og mass destruction

Punktar

Erlendir miðlar í morgun eru fullir af fréttum af Íslendingum. Þar skín í gegn, að menn hafa enn minna álit á ráðamönnum þjóðarinnar en íslenzkir bloggarar hafa. Talað er um Geir Haarde sem eins konar “disaster”, sbr. samskiptin við Bretland. Og um terroristann Davíð Oddsson sem “weapon of mass distruction”. Öllum er ljóst, að Ísland er gjaldþrota fyrir vanhæfni valdamanna okkar. Þeir framleiddu fjármálakerfi án regluverks og eftirlits. Gátu svo ekki höndlað bakslagið, þegar það sprakk í andlit okkar allra. Davíð og Geir og Björgvin og Árni og Össur njóta einskis trausts erlendis.