Díoxín var leyndó kerfiskarla

Punktar

Forstjóri Umhverfisstofnunar og nokkrir bæjar- og sveitarstjórar telja ekki, að lífshættuleg mengun komi almenningi við. Héldu díoxínmengun leyndri í þrjú ár. Hefðu viljað halda henni lengur leyndri. Umhverfisstofnun sá ekki heldur ástæðu til að amast við díoxínmengun í þrjú ár. Hefði viljað láta hana lengur í friði. Að þeim tíma liðnum gaf hún sóðunum tveggja ára frest til að laga stöðuna. Vita þó allir, að orsök aðgerðarleysis er engin önnur en röng forgangsröðun útgjalda hjá sveitarfélögum. Díoxín-málið er verulega andstyggilegt og sýnir samtvinnaða heimsku og hroka leyndarkarla kerfisins.