Björn L. Bergsson lagatæknir var settur saksóknari vorið 2009. Fann snöggt út, að hvorki Davíð Oddsson né Jónas Jónsson hefðu gert neitt af sér sem seðlabankastjóri og forstjóri fjármálaeftirlits. Er nú formaður kærunefndar jafnréttismála. Ég treysti honum ekki heldur þar. Held, að hann sé í aðför að Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún hafði látið setja upp faglegt matsferli um ráðningar embættismanna. Eftir því var farið í ráðuneytinu. Líklega hefur matið ekki verið nógu gott, því Björn fann á því göt. Hann heldur fram, að frambjóðandi númer fimm sé hæfari en sá, sem varð númer eitt. Lyktar illa.