Davíð Oddsson bjó til einkavæðingu bankanna og eftirlitsleysi með þeim. Hann handvaldi nýja eigendur Landsbankans og setti framkvæmdastjóra flokksins yfir bankaráðið. Gæludýr Davíðs stofnuðu til IceSave á ábyrgð þjóðarinnar. Eftir hrun lofaði Davíð að borga tjónið. Ríkisstjórn arftaka hans fékk það samþykkt á Alþingi. Nú erum við í djúpum skít út af því. Auðvitað eigum við að hundelta Björgólf Thor um allan heim til að fá þetta endurgreitt. En fyrst og fremst á Davíð Oddsson að borga. Hann kom að málinu á öllum stigum þess. Brennuvargurinn, sem hoppar núna gargandi fúkyrði kringum brunaliðið.