Dauðans þögn stjórnvalda

Punktar

Ríkisstjórnin nefnir ekki snöru í hengds manns húsi. Hún steinþegir. Allir ráðherrarnir sem einn. Stjórnin steinþegir um hengingar-skilmála Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Hún steinþegir um samskipti sín við brezka ráðamenn, nema símtal Árna og Darling. Spyr ekki neinn um leyfi til neins. Brennir 200 milljörðum fyrir markaðssjóði án þess að spyrja Alþingi eða eigendur annars sparifjár. Hleypir bara brennuvörgum að brunavörnum þjóðarinnar. Setur upp 250 manna herlögreglu með óeirðabílum og rafbyssum. Hrokafullir heimskingjar telja sig ekki þurfa að segja neitt við umbjóðendur sína.