Dauðadrukknir og auðþekktir

Punktar

Bretar skera sig úr á ströndum Miðjarðarhafsins, sagði iht.com í gær. Þeir eru dauðadrukknir, klæða sig úr öllu og haga sér ferlega. Fylla fangelsi og slysadeildir. Þeir virðast hafa eitt markmið, að drekka sig í hel. Árið 2007 dó 1591 Breti á Spáni. Brezkir flugdólgar valda líka millilendingum flugvéla. Íbúar sumra ferðasvæða Miðjarðarhafsins hafa mótmælt. Nokkrir ferðastaðir hafa bannað Breta. Svo virðist sem ungir Bretar telji sig vera í fangelsi heima fyrir og þurfa að sletta úr klaufunum erlendis. Um tíma leituðu Bretar að blakkáti í Reykjavík. En ekki lengur, sem betur fer.