Darling takmarkaði tjónið

Punktar

Þegar ég sá Alistair Maclean Darling í sjónvarpinu í vikunni, minntist ég hans úr hruninu. Þá leizt mér ekki á kauða. Taldi hann beita bolabrögðum í IceSave. Þegar sannleiksskýrslan kom í ljós, sá ég, að það var rangt og birti það. Brezka stjórnin var í fullum rétti að beita hryðjuverkalögum gegn Íslandi. Bófar höfðu skafið Ísland að innan með stuðningi stjórnvalda. Þeir voru farnir að skafa Bretland að innan með stuðningi íslenzkra stjórnvalda. Darling stöðvaði fjárstrauminn með handafli og setti Ísland blessunarlega á hausinn. Hindraði þannig, að Davíðs-hrunið yrði enn verra en það þó varð.