Scott McClellan slátrar ekki bara George W. Bush í bókinni What Happened?, sem kom út í vikunni. Fyrrum blaðafulltrúi forsetans sakar Condoleezza Rice um að hafa trassað að reyna að koma vitinu fyrir fáfróðan forseta. Heldur hafi hún beinlínis passað að segja fíflinu ekkert annað en það, sem það vildi heyra. Bók blaðafulltrúans hefur vakið mikla reiði repúblikana, enda er höfundurinn gróinn Texas-repúblikani. Ruglið kringum fáfróðan forseta rann upp fyrir honum hægt og sígandi, seint og um síðir. Bók hans lýsir, hvernig spunastefna Karl Rove leiddi embættið í ógöngur og eyðilagði Bush.
