Fyrst var það Byrgið, síðan Krossinn og núna Ekron. Gleymum ekki þjóðkirkju Íslendinga. Trúin virðist hafa einstakt lag á að laða að sér kynferðisglæpi hér á landi. Það eru ekki bara kaþólskir prestar í útlöndum, sem eiga í vandræðum með sig. Nú þarf að stöðva sorann með því að loka kristilegum meðferðarheimilum. Slík heimili eiga að vera í höndum starfsfólks, sem er til þess menntað. Ofdrykkja er ekki kristilegur vandi, heldur sjúkdómur, viðurkenndur af Alþjóða heilbrigðisstofnuninni. Umönnun barna á líka að vera í höndum menntaðs og hæfs starfsfólks, alls ekki kristilegs ofstækisfólks.