Burt með skilanefndirnar

Punktar

Skilanefndirnar vinna fyrir spillinguna í samkrulli útrásarvíkinga og gömlu bankanna. Neita að afhenda skattrannsóknastjóra gögn um viðskipti úti í Luxemborg. Því þurfa þær að selja Kaupþing þar í hvelli. Jafnvel þótt það fari til Libýu, sem hefur Sigurð Einarsson að ráðgjafa. Það er selt til að ekki náist í gögn. Þau fjalla um aðstoð við ólöglegan peningaþvott tengdan skattsvikum á Íslandi. Íslenzkir athafnamenn notuðu Lúxemborg í nokkrum mæli við flutning á peningum í erlend skálkaskjól. Skilanefndirnar vinna því ekki fyrir ríkisvaldið, skattinn eða þjóðina. Burt með allar skilanefndirnar.