Burt með gereyðingarvopnið

Punktar

Ríkisstjórnin hefur nóg með sjálfa sig. Hún hefur ekki til viðbótar efni á að hafa núverandi seðlabankastjóra. Erlendir viðskipta-fjölmiðar skrifa um Davíð Oddsson eins og fávita. Þar á meðal Financial Times og Wall Street Journal. Svipað segja erlendir peningafræðingar, sem hafa sagt álit sitt á hruni Íslands. Davíð er eini pólitíkus heims í hlutverki seðlabankastjóra. Hann á þar ekki heima og er búinn að gera nógu illt af sér. Fásinna er að lána Íslandi hundruð milljarða króna meðan hann er enn við völd. Geir verður að safna saman í hugrekki til að losa þjóðina við gereyðingarvopnið.