Burt með allar ríkisábyrgðir

Punktar

Bankar eiga að standa á eigin fótum, vera sjálfbærir. Þeir eiga sjálfir að standa undir sínum innistæðutryggingum. Ríkið á ekki að koma til skjalanna. Þjóðin hefur ákveðið, að ekki beri að ábyrgjast skuldbindingar bankabófanna. Ríkisábyrgð á skuldum hlutafélaga er alfa og ómega vandræða þjóðarinnar um þessar mundir. Ríkisstjórnin á tafarlaust að vinda ofan af ábyrgð á stóru bönkunum og hætta við áform um ábyrgð á litlum bönkum, sparisjóðum og tryggingafélögum. Ekki síður á ríkið að afnema ríkisábyrgð á Landsvirkjun. Þessar stofnanir eru reknar af bófum, sem þjóðin vill alls ekki ábyrgjast.