Búrkur eru tæpast brýnn vandi

Punktar

Búrkur eru tæpast brýnasti vandi Íslendinga, þótt þær hafi verið bannaðar í Frakklandi og á Ítalíu. Ég hef aldrei séð búrku á Íslandi og býst tæpast við þeim á næstu árum. Væntanleg madrassa wahabíta í Öskjuhlíð getur þó orðið tilefni skoðunar málsins. Búrkur eru toppurinn á ísjaka ýmissa vandamála í samskiptum við róttæka múslima. Án efa er óþægilegt að eiga samskipti við fólk í búrku, þegar augun sjást tæpast. Auk þess geta þær verið dulargervi, þótt langsótt sé. Líklegast finnst mér, að áhyggjur Sjálfstæðisflokksins séu reistar á því áliti, að raunverulegum vandamálum fari fækkandi hér á landi.