Brown talar um fjárdrátt

Punktar

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur lýst yfir, að Landsbankinn hafi flutt mikla fjármuni úr IceSave fyrir hrunið. Til Íslands segir Brown. Við höfum ekki enn fengið að vita, hvernig þetta gerðist. Voru þeir Halldór og Sigurjón í svindli fyrir hönd Landsbankans eða fyrir hönd Bjögganna? Það er eitt verkefna okkar að komast að, hvaða svindl var þarna í gangi. Við verðum að geta sýnt umheiminum, að einhverjir fjársvikarar séu gripnir.