Brosað framan í ykkur

Punktar

Kerfið hefur fengið nóg að vita til, að tugir og líklega hundruð Íslendinga væru fangelsismatur erlendis. Tugir bankamanna og loftbólumanna væru komnir í ævilangt fangelsi. Hér gengur bara allt sinn vanalega gang. Höfuðpaurinn sjálfur kann að verða ritstjóri Moggans. Einn helsti kúlukarlinn fullyrðir í fjölmiðlum, að honum beri ekki að borga skuldir sínar. Kúlukarl Flokksins flaug inn á þing. Þetta er allt saman lið, sem á að sitja inni meira eða minna ævilangt. Þar sem þetta er bananaríki, brosir það bara framan í ykkur í sjónvarpi. Er ykkur hinum fyrirmunað að sjá, hversu hart þið eruð leikin?