Brezka læknafélagið krefst opinberra aðgerða gegn misnotkun áfengis, sem það telur vera orðna að farsótt. Heimtar hærri álögur í hlutfalli við áfengismagn. Krefst styttingar á opnunartíma vínveitingastaða. Vill banna tilboð, til dæmis lækkað verð klukkan 17-18. Læknasamtökin vilja líka banna áfengisauglýsingar og kostun á vegum áfengisfyrirtækja. Einnig vill félagið setja merkimiða á bjór og vín og sterkari drykki, eins og eru nú á tóbaki. Læknafélagið segir notkun áfengis vera mesta sjúkdóm nútímans. Kallar það neyðarástand, að 30-40% af ungum Bretum styttir ævi sína með áfengi.
