Niðurstaðan var góð, Evrópusambandið klofnaði ekki. Hins vegar einangraðist hin eigingjarna ríkisstjórn Cameron í Bretlandi. Enginn fylgdi Bretlandi að málum fyrir rest, jafnvel ekki Danmörk og Svíþjóð, Ungverjaland og Tékkland. evruríkjunum sautján fylgdu tíu ríki, sem ekki nota evru. Þetta eru ríkin, sem vilja koma á fót ábyrgum ríkisfjármálum að þýzkum hætti. Felldar voru allar tillögur Breta um undanþágur fyrir brezka bankamenn í City. Cameron var hundskammaður á fundi Evrópusambandsins í dag fyrir að ota brezkum tota á örlagastundu. Einangrun Bretlands skiptir meginmáli við framvindu Evrópu.